Alltum City

Heimsókn til Bournemouth

Keppni: Enska Úrvalsdeildin

Andstæðingur : Bournemouth

Hvar: Bournemouth, Vitality Stadium

Hvenær: Sunnudag 25. Ágúst klukkan 13:00

Okkar menn ferðast til Dorset ríki á Englandi, þar sem að þeir mæta heimamönnum í Bournemouth. Manchester City hefur haft góð tök á Bournemouth, sem munu héðan í frá vera vitnað í sem „kirsuberin“ en gælunafn kirsuberjanna er „The Cherries“.

City gerði 2-2 jafntefli gegn Tottenham í bráðfjörugum leik þar sem að City voru með töluverða yfirburði í þeim leik en Tottenham sýndu það að þú þarft ekki nema tvö skot til að skora tvö mörk. Á meðan í sömu umferð gerðu kirsuberin vel og unnu Aston Villa 1-2 á útivelli. Í fyrstu umferðinni gerðu þeir jafntefli við Sheffield United 1-1 á heimavelli.

City og kirsuberin eru því með jafnmörg stig eftir tvær umferðir eða fjögur talsins ásamt sex öðrum liðum.

  • City hefur ekki tapað fyrir kirsuberjunum síðan þeir komu upp í úrvalsdeildinna. 2 jafntefli og 12 sigrar.
  • Raheem Sterling finnst gaman að spila í Bournemouth og hefur komið að tíu mörkum í einungis sjö leikjum. Átta mörk og tvær stoðsendingar.
  • Kirsuberin hafa ekki haldið hreinu í seinustu 21 leik sem þeir hafa spilað á sunnudegi. Fengið 56 mörk á sig, unnið þrjá, jafntefli tvisvar og tapað sextán.
  • City vann heimaleikinn á seinasta tímabili 3-1 sem og útileikinn 0-1.

Manchester City

Það er ekki margt að frétt af Manchester City seinustu vikuna. Fréttir bárust af því að Benjamin Mendy væri mættur á æfingar og gæti farið að spila með liðinu eftir stuttu eftir landsleikjahléið.
Einnig er Zinchenko ekki meiddur en það var óttast að hann hafði meiðst í leiknum gegn Tottenham en það var einungis slæmur krampi. Það eru því allir leikmenn heilir nema Stones og Sane en sögu bárust af því að hann yrði ekki frá í nema þrjá mánuði og gæti því náð stórum hluta tímabilsins.
Cancelo gæti spilað sinn fyrsta leik en það er ólíklegt miðað við hvernig blaðamannafundur Guardiola spilaðist en hann talaði um að Cancelo myndi spila eftir landsleikjahléið, því má slá föstu að Walker byrji þennan leik.
Það má því búast við að byrjunarliðið verði verulega svipað og var gegn Tottenham. Ég sé fyrir mér að Gundogan detti út í stað Silva og jafnvel Aguero komi út fyrir Jesus.

Bournemouth

Kirsuberin hafa byrjað tímabilið á svipuðu nótum og City og stigasöfnunin er sú sama. Eins og áður sagði hafa City haft verulega gott taka á kirsuberjunum og ekki tapað fyrir þeim síðan þeir komu upp í úrvalsdeildinna.
Heimavöllurinn hefur talið mikið og er hann lítill og af gamla skólanum og tekur 11.239 áhorfendur í sæti og er undantekningarlaust uppselt á leiki liðsins.
Þeir eru fínt mannaðir og fengu til sína Harry Wilson frá Liverpool en hann gerði góða hluti með Derby í championship deildinni og er að sanna sig á stærra sviðinu, hann hefur skorað eitt mark.
City þarf einnig að passa sig á framherjunum tveimur Wilson og King en þeir hafa verið frábærir undafarið ár þá sér í lagi Callum Wilson.

Dómgæslan verður í höndum á Anrde Marriner og hans teymi.
Leikurinn verður sýndur í sjónvarpinu og safnast City klúbburinn fyrir sunnan á Ölver eins og endranær.
Áfram City!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *