
Þetta er sennilega það lið sem mér þykir vænst um af öllum City liðum ,ekki það besta vann ekki neitt 🙂 en maður var nú vanur því enn þetta lið fékk mig einhverra hluta vegna algjörlega yfir í City vagninn. City komu svo til Akureyrar og spiluðu við Þór sumarið 1981 þannig að maður fékk að bera þá augum live.
Það er smá forsaga á bak við þetta lið og hvernig það mótaðist . Árið 1979 kom Malcolm Allison aftur til City og átti að gera þá að meisturum.


Liðið hafði lent í 2 og 4 sæti árin á undan og fékk Malcolm kallinn frábært lið í hendurnar , mun ég fjalla síðar um 1977-78 liðið sem var eitt það besta sem City hefur átt. Malcolm var hrikalegur töffari og vildi sitt eigið lið þannig að hann seldi alla og keypti nýtt lið og notaði fullt af ungum leikmönnum sem hreinlega réðu ekki við verkefnið. Í byrjun tímabilsins 1980-81 þá var Malcolm með liðið í neðsta sæti með ekkert stig og ekkert var að ganga upp. Malcolm Allison var rekinn og stjóri Norwich John Bond var ráðinn í staðinn.
Verð samt að segja að Malcolm Allison var besti þjálfarinn á þessum tíma um það voru flestir samála og hann og Joe Mercer mynduðu frábært teymi og unnu allt sem hægt er að vinna þann tíma sem þeir voru saman hjá City, hann var bara aðeins of mikill töffari til að stjórna liðinu einn og því fór sem fór.
John Bond notaði ungu leikmennina sem fyrir voru , en fékk nokkra gamla reynslu bolta til að hjálpa þeim.
Liðið lyfti sér af botninum vann m.a United sem er alltaf gott og fór alla leið í úrslit í einn frægasta bikarúrslitaleik sögunar á móti Tottenham. Einnig fóru þeir í undanúrslit í deildarbikar en töpuðu mjög ósangjarnt gegn Liverpool frægur dómaraskandall.
Markmaður: Joe Corrigan , uppalin hjá félaginu einn þekktasti leikmaður City á þessum árum og minn uppáhalds markmaður sorry Joe Hart

Hægri bakvörður: Ray Ranson uppalin hjá félaginu mikill vinnuhestur með frábæra fyrirgjafir, reyndi síðar að kaupa City enn það mistókst hjá honum.

Vinstri bakvörður : Bobby Macdonald, Bond keypti hann frá Coventry til að laga vörnina skoraði mikið og var grjótharður.

Miðvörður: Nicky Reid, uppalin hjá félaginu gat einnig spilað sem djúpur miðjumaður og bakvarðarstöðuna spilaði í 10 ár fyrir City

Miðvörður : Tommy Caton , uppalin hjá félaginu hrikalegt efni var orðinn fasta maður í liðinu 16 ára gamall , spilaði síðar fyrir Arsenal, dó langt fyrir aldur fram aðeins 30 ára gamall.

Hægri kantur: Tommy Hutcinsson, var keyptur af Bond frá Coventry alveg fjör gamall en var samt algjörlega magnaður á kantinum fyrir City þann tíma sem hann var þar. Er frægastur fyrir að skora í bæði mörkin í hinum fræga bikarúrslitaleik 1981.

Vinstri kantur: Paul Power, uppalin hjá félaginu fyrirliði spilaði nærri 400 leiki fyrir félagið fór með liðinu í gegnum súrt og sætt frábær leiðtogi.

Miðjumaður : Steve Mackensie , leikmaður sem Malcolm Allison fékk til liðsins frá Crystal Palace aðeins 18 ára, Malcolm sagði alltaf að hann myndi verða besti miðjumaður í heimi og hann byrjaði svo sannalega vel hjá City, einn af mínum uppáhalds leikmönnum og það var súrsætt þegar hann var seldur strax næsta tímabil til að fjármagna kaupin á Trevor Francis. Er frægastur fyrir algjörlega stórkostlegt mark í seinni úrlslitaleiknum á Wembley.

Miðjumaður : Gary Gow, þessi gaur keypti Bond frá Bristol City til að fá smá stál á miðjuna og hjálpa Mackensie. Sennilega grófasti leikmaður í sögu City en alveg magnaður tæklaði allt sem hreyfðist og hefði ekki tollað inná í dag í einum einasta leik hefði allaf fengið rautt. Enn hann kunni svo sannalega að spila fótbolta líka og var lykilmaður á miðjunni.

Framherji : Dave Bennett, uppalin hjá félaginu skemmtilegur leikmaður sem gat leikið nokkrar stöður

Framherji : Kevin Reeves, rándýr leikmaður sem Malcolm keypti , var mjög góður hjá City skoraði mikið og ég man að ég hélt mjög mikið upp á hann .

Verð líka að minnast á sennilega frægasta leikmann þessa liðs þó hann hafi oft verið meiddur þetta tímabil þá er ekki hægt að sleppa að tala um : Dennis Tueart, einn besti leikmaður City hann hafði komið aftur til City þarna enn var oft að glíma við meiðsli enda kominn á síðari hluta sinns ferils. Meira um hann þi liðinu 1977-78 sem fjallað verður um síðar.

Hérna eru svo mörk úr nokkrum leikjum sem þetta lið spilaði:
FA cup final Tottenham fyrri leikurinn
— Þröstur