MCFC Íslandmancity.is

Pistlar / Pistlar

The impossible dream

Stuðningsmaður City
u.þ.b. ágúst 20148 mín lestur

⏳Úr gamla safninu. Fjallar um 1982–2014 — Frá 3. deild til meistaratitla. Sjá á tímalínunni →

Þann 23.september 2008 urðu þáttaskil í mínu lífi sem aðdáanda Manchester City frá því að ég var krakki.

Með peningunum kom von, von sem ég hafði algjörlega gefið upp á bátinn eftir að Meistardeildin breyttist 1992. Ég hef alltaf dreymt um að mínir menn gætu blandað sér í toppbaráttuna.

1982 hélt ég að eitthvað myndi gerast City hafði keypt landsliðsmanninn Trevor Francis

og var með fantagott lið, vann m.a hið stórkostlega lið á þeim tíma Liverpool með Sounes, Dalglish, Rush og allar superstjörnurnar 3-1 á Anfield og við komumst á toppinn um stund í kring um jólin. Enn hópurinn var þunnur Francis meiddist og liðið endaði um miðja deild, Francis var seldur til Ítalíu um sumarið til að fjármagna skuldir . Næsta ár féll City .

▶ Horfa á myndband Svona var þetta næstu áratugi smá von en bestu leikmennirnir fóru áður en hægt væri að byggja upp almennilegt lið.

Mesta niðulæging í sögu City var fall í gömlu 3.deildina

man eftir 0-1 tapi fyir Bury á heimavelli , maður spurði sjálfan sig er þetta þess virði að halda með svona liði ?

City lenti í 3.sæti í 3.deild þetta árið alveg hreint skellfilegur árangur, komumst samt á Wembley í playoffs leikinn . Andstæðingurinn var Gillingham þjálfað af Tony Pulis „íslandsvini”.

Það sem gerðist í þessum leik hefur síðan verið talið mikilvægasti leikur í sögu Manchester City.

Gillingham komst í 2-0 og vallarklukkan sýndi 90 mín. Ef City hefði tapað þessum leik eru margir á því að fjárhagserfiðleikar liðsins hefðu farið langt með að ríða félaginu að fullu.

Horlock minkaði muninn og á 95 mín jafnaði Dickov og City vann í vítaspyrnukeppninni sem á eftir fylgdi. Sonur minn sem þá var 10 ára hafði fylgst með Pabba sínum truflast yfir því að liðið hans sigraði leik í 3.deild , hefur verið stuðningsmaður síðan.

▶ Horfa á myndband Kevin Keegan kom til félagsins 2001 með honum komu ferskir vindar sóknarbolti með stóru S .

City slátraði 1.deildinni það árið á leið sinni upp í úrvalsdeildinna .

Skemmtilegur tími fyrstu tímabilin á nýrri öld . Leikmenn eins og Anelka, Foe,Fowler, Bernabia , en Keegan gerði eins og hann var vanur hann hætti allt í einu og aftur tók við meðalmennskan.

Meistaradeildin var eitthvað fjarlægt fyrirbæri í mínum huga. Liðin sem þangað fóru fyrir hönd England voru yfirleitt þau sömu og svo fór að Liverpool, Manchester United, Chelsea og Arsenal voru kölluð big4 á Sky og höfðu um árabil áskrift að meistaradeildinni með öllum þeim peningum sem því fylgdi.

Allt breyttist svo 2008 ,

það kom yfirlýsing frá nýjum eigendum um að skuldir yrðu greiddar niður, margir leikmenn yrðu keyptir því hópurinn hafði nánast engan almennilegan leikmenn. Varað var við því að ekki myndu öll kaup liðsins vera heppnuð og að það tæki nokkurn tíma til að finna réttan ballance í liðið. Einnig var talað um að til að byrja með yrði mikið tap á rekstri félagsins á meðan stoðum yrði komin undir reksturinn. Allt þetta hefur ræst og nýjustu fréttir eru þær að félagið stefnir í hallalausan rekstur á næsta ári og síðan verður hagnaður af reksrinum. Fréttaflutningur af City hefur verið algjörlega einsleitur og oft finnst mér fréttamenn hafa stoppað 2008 og ekkert kynnt sér hvað sé í raun að gerast í rekstri félagsins. Uppbyggingin á innviðum liðsins eins og unglingastarfsemin og fleira er efni í annan pistil. Ég er viss um að margir trúi ekki því sem ég segi enn tíminn mun leiða það rétta í ljós og í raun má segja að UEFA hafi verið full seinir að refsa City fyrir hina svo kölluðu Fair Play reglu og það er vandræðalegt til þess að hugsa að það skuli vera refsing fyrir það að breyta fyrirtæki eins og fótboltafélög svo sannarlega eru þannig að þau sýni stökkbreytingu í rekstrartekjum, skuldi ekki neitt, útrými atvinnuleysi í nágrenni félagsins og byggi upp aðstöðu fyrir unga knattspyrnumenn sem verður sú besta í heiminum í dag. Slæmt fyrir knattspyrnuna ?

Það sem ég tel aftur á móti það besta við nýja velgengni City er að það hefur hrist upp í hinu staðnaða umhverfi sem enski boltinn var orðinn . Alltaf sömu liðin í topp 4 og Manchester United varð meistari nema Chelsea stundum allir glaðir .

Tímabilið 2011-2012 kom City hafði lent í 3.sæti árið áður og ég hafði séð bikar í fyrsta sinn sem aðdáandi . FA cup shit hvað þetta var magnað ég get svo vanist þessu.

Október 2011 Manchester United vs Manchester City úrslit 1-6 . Ótrúlegt , fréttaflutningur eftir þennan leik var skrítin það var eins og menn væru dofnir hefðu verið sleignir utanundir.

Hvaða rugl var í gangi hver fer á Old Trafford og niðurlægir meistarana . Valtýr Björn sagði á Bylgjunni með titrandi röddu , ekki afskrá United þeir eru sko með Ferguson hann sættir sig ekki við þetta.

Einn af höfuðpörum fotbolti.net hlóð í pistil City er að skemma partýið.

http://fotbolti.net/fullStory.php?id=117726

Í mínum huga var einmitt City að bjóða upp á party.

Liðið sem var að skemma partyið fyrir honum hafði ekki orðið meistari síðan 1968. Var sem sagt verið að eyðileggja 20.titil United, eyðileggja það að enn og aftur yrði United meistari.

Þetta tímabil breyttist í einvigi Manchester liðana.

Umfjöllun hefur verið sá sami síðan ,alltaf það sama , ef City vinnur þá er það útaf því að þeir eru með „dýrasta” lið í heimi , ef þeir tapa þá var það til skammar að svona dýrt lið með svona há laun skuli voga sér að vinna ekki leikinn.

Tímabilið 2011-2012 var PR maskina United á algjörum yfirsnúning. Gamlar kempur sem einhvertíma höfðu spilað fyrir United voru dregnir fyrir framan myndavélina til að útskýra fyrir öllum að United hefði reynsluna til að landa svona titli og að City myndi bugast undir pressunni því City væri samansafn einstaklinga á meðan United væri sko „lið”.

Svo byrjaði „sálarstríðið” milli Ferguson og Mancini , og hvað menn hlógu að Mancini að reyna sálarstríð við Ferguson það hefur sko enginn unnið svoleiðis.

Niðurstaðan var sú að í síðustu 6 umferðunum þá unnu City alla sína leiki þar á meðal United þar sem Fergie kallinn missti coolið og réðist á Mancini , en United tapaði niður 8 stiga forskoti.

Allt endaði þetta svo í leiknum fræga 13.mai 2012 þegar City tryggði sér titilinn með því að skoða 2 mörk í uppbótartíma. Ég var ásamt góðum hóp City mann frá Íslandi á leiknum og sú tilfinninga russibani sem maður upplifði þarna er best að láta lesendur um að ímynda sér því það er einfaldlega ekki hægt að lýsa þessu.

Ég var mjög hissa hversu lítið fjölmiðlar innlendir og erlendir notuðu þetta móment , það vantaði ekki lýsingarorðin þegar markið hans Aquero tryggði City titilinn á svona dramatískann hátt . Eftirmálar þessa voru mjög furðulegir, en lítið var gert úr þessu um sumarið og svo í aðdraanda næsta tímabils um haustið. Ég er sannfærður að ástæða þess sé tillitsemi við fjölmarga aðdáendur Manchester United allt frá Malasíu til Íslands.

Hvað sem því lýður þá fylgdi mínir menn ekki þessum sigri eftir og United sigraði deildina sannfærandi, örugglega og sanngjarnt 2013.

Þá er komið að nýliðnu tímabili. Fljótt kom í ljós að keppnin yrði meira spennandi en oft áður enn 4 lið skáru sig fljótlega úr : Arsenal, Liverpool, Chelsea og City virtust öll geta orðið meistarar, fyrst um sinn litu Arsenal út fyrir að ætla vinna deildina og voru lengst af á topnum, Chelsea sýndu einnig styrk sinn og voru með bestu vörnina, en loks var komið að Liverpool og voru þeir búnir að vinna deildina þegar 4 umferðir voru eftir, eða svo var okkur sagt. Leikurinn við City var úrslitaleikur og ef þeir ynnu hann þá myndu þeir verða meistarar. Þeir unnu ég var niðurbrotinn þegar flautað var til leiksloka en svo gerðist það ég fékk von, Gerard bjó til drama sýningu eftir leikinn .

Allir héldu ekki vatni yfir því hversu mikill leiðtogi hann er , von mín jókst enn meir þegar ég heyrði viðtal við hann eftir leik, „We have just beating the so called best team in the land” .

Ég vissi að Kompany og co myndu ekki fíla svona comment. Kompany sýndi svo super karakter eftir mistökin sýn á Anfield og leiddi sýna menn til sigurs í deildinni.

Kompany er einn af þessum mönnum sem fá að mínu viti allt of lýtið lof fyrir það hversu magnaður fyrirliði hann er , menn eru sammála um að hann sé góður varnarmaður enn hann er enn betri fyrirliði, besta dæmið er að eftir fyrsta mark City í síðasta leiknum móti West Ham þá fagnaði hann ekki heldur benti á hausinn á sér eins og að gefa merki um að menn væru fullkomlega professional og færu ekki að fagna of snemma.

Ég get ekki setið á mér enn að undrast á þeirri einsleitu umfjöllun sem var á þessari baráttu um titilinn.

Búið var að gefa það út að Liverpool ætti skilið að vinna , Gerard ætti skilið að verða meistari, Liverpool spilaði skemmtilegasta boltann í Evrópu og ég veit ekki hvað og hvað.

Suarez var besti leikmaður í heimi , Sterling besti ungi leikmaður evrópu, Gerard besti varnartengiliður í Evrópu, Sturidge næst besti sóknarmaður í heiminum en samt unnu þeir ekki neitt.

Dæmi um skrítna umfjöllun var á morgni dags þegar Liverpool átti leik við Chelsea þá síðar um daginn. Fréttamaður Bylgjunar sagði að Liverpool væri aðeins einu skrefi frá titlinum, hmm .

Niðurstaðan er jú sú að City er á síðustu 3 tímabilum búnir að etja kappi við bæði Manchester United og Liverpool og haft betur í bæði skiptin.

Tilfinningin sérstaklega á nýliðnu tímabili var eins og maður væri að berjast við íslenska landsliðið maður fékk óskiljanlegt sammviskubit að hafa unnið þessa mediu darlings.

— Stuðningsmaður City